14.1.07

Vorið er komið og grundirnar gróa

Já það er með sanni sagt að vorið er komið hér í køben

í gær 13.01.2007 kom dóttir mín til mín og sagði að það væri bífluga inni í stofu.
Ég með stakri ró sagði að það væri nú ekki möguleiki á því að það væri bífluga gæti verið einhver smá fluga en ekki BÍFLUGA. En viti menn daman hafði rétt fyrir sér það var þessi væna hlussu bífluga á stofuglugganum (sem betur fer að utanverðu) stærðin þetta 1,5 cm á lengd og 0,5 cm á breidd ekki neitt minnigerðin sko.

þannig að hér bíðum við ekki eftir Lóunni heldur bíinu

hafið það gott elskunar.

kveðja Kiddi í Køben