14.1.07

Vorið er komið og grundirnar gróa

Já það er með sanni sagt að vorið er komið hér í køben

í gær 13.01.2007 kom dóttir mín til mín og sagði að það væri bífluga inni í stofu.
Ég með stakri ró sagði að það væri nú ekki möguleiki á því að það væri bífluga gæti verið einhver smá fluga en ekki BÍFLUGA. En viti menn daman hafði rétt fyrir sér það var þessi væna hlussu bífluga á stofuglugganum (sem betur fer að utanverðu) stærðin þetta 1,5 cm á lengd og 0,5 cm á breidd ekki neitt minnigerðin sko.

þannig að hér bíðum við ekki eftir Lóunni heldur bíinu

hafið það gott elskunar.

kveðja Kiddi í Køben

7.1.07

já nú er það komið á skrið verður að bloga oftar

Vegna áskorana
Hef jeg nú ákveðið að halda áfram að bloga og bloga lítið eitt meira en á næsta ári enda nú þegar kominn í 25% af öllu blogi í fyrra
það helsta núna er að á morgun er minn fyrsti vinnudagur í danmörku! get ekki sagt utan íslands þar sem ég hef nú þegar unnið í Þýskalandi og Bretlandi í smá tíma í senn en þetta er svona fyrsta alvöru jobbið mitt skrifa upp á 4 ára samning til að geta klárað námið til optiker (sjóntækjafræðingur(sem er allt of langt orð miða við optiker ))
jeg keypti mér mit fyrsta 3 Zoner månadskort i toget og kemst nú í fields án þess að kaupa mér extra Zone og í vinnuna stiðstu leið en þarf sem sagt að fara úr zone 2 í gengum Zone 3 til að komast þá leið og inn í Zone 1 þar sem vinnan mín er á amagerbrogade 44

6.1.07

Já námið heldur áfram

í gær föstudaginn 5 janúar fékk ég loksins samning
ég fékk samning hjá Louis Nielsen
Amagerbrogade 44 - 46
og þar með er ekki ný framtíð í uppsiglingu meir heldur áframhaldandi nám næstu 4 árin hjá TEC frederiksberg og Louis Nielsen
Ég var mikið farinn að spá í að prófa fleirri grundforlob en þetta lukkaðist og þar með hugmyndir um bók um grundforlob í danmörku orðnar að engu.
en nú bendi ég öllum sem lesa þetta að kynna sér góð tilboð á gleraugum hjá Louis Nielsen
á vefslóðinni
www.louisnielsen.dk og koma svo við hjá mér á amagerbrogade 44

með hveðju til allra sem enn lesa blogið mitt

kveðja kiddi í køben