2.5.07

Højre svingende lastbil

Já einmitt.
eitt stærsta vandamál hjólandi fólks i danmörku er akkurat þetta. Og auðvitað fékk ég að finna fyrir þessu á leið í vinnu þann 1.maí.2007 . það kom svona gámabíll frá götunni og beygði inn til hægri og beinnt í veg fyrir mig. Ég kom samsíða bílnum á hjólabrautinni og milli okkar var lagt stórum sendiferðabíl þannig að við sáum ekki hvorn annan fyrr en of seint. Endaði þetta með því að ég klessti inn í hlið bílsins og sem betur fer var hann ekki með gáminn á þannig að ég klemdist ekki mikið nema aðeins á hendi og datt ekki í götuna. þannig að ég var virkilega heppinn að slá ekki höfðinu í neitt þar sem ég var hjálmlaus.
Kallinn á gámabílnum var mikið brugðið bæði vegna þess að þetta er ein stærsta orsök dauðaslysa á hjóli í danmörku og að vera ekki skráður fyrir óhappi því þá missir hann ökuleifið og þar með vinnuna og í skaðabætur gaf hann mér 200 kall sem ég nýtti mér til kaupa á hjólahjálminn hér á myndinni.

þannig að ég vona að fleirri nýti sér óhappið sem aðvörun og kaupi sér hjólahjálm.



P.S. og noti hann líka .

með venlig heilsu
Kiddi í Køben