31.10.07

29.10.07

loksins eithvað

það var einhver sem sagði að myndir væru meira en 1000 orð þannig að með nýja símanum mínum ætla ég að gera eina en tilraun til að blogga með myndum
og láta þær bara skýra sig sjálfar

15.6.07

ekki mikið að tala um

já það er nú þannig að maður hefur nú bara verið að vinna hingað til
ég fór nú í aalborg í 2 vikur í lok maí og var það nú upplifun sem ég ætla mér að sleppa við að upplifa aftur. að vera lokaður í borg í 2 vikur án nokkura vina eða nokkuð sem helst er ekki gaman
upplifði gamla góða japans fiskitúrana alveg upp á nýtt.
jaja nóg um það
en svo var ég að uppfæra hjólið mitt í dag keypti mér slöngu í afturdekk og bremsuklossa í handbremsuna á framdekkinu og síðast en ekki síst svaka hjólatölvu með 13 mismunandi upplýsingum om hversu fljótur ég er í vinnuna og afhverju ég var svona fljótur
hún telur hversu mörgum sinnum ég sný pedulunum mínum á leiðinni meira að segja

en nú er svefntími og tími til að horfa á einn þátt af kompás og fara svo að sofa
góða nótt

2.5.07

Højre svingende lastbil

Já einmitt.
eitt stærsta vandamál hjólandi fólks i danmörku er akkurat þetta. Og auðvitað fékk ég að finna fyrir þessu á leið í vinnu þann 1.maí.2007 . það kom svona gámabíll frá götunni og beygði inn til hægri og beinnt í veg fyrir mig. Ég kom samsíða bílnum á hjólabrautinni og milli okkar var lagt stórum sendiferðabíl þannig að við sáum ekki hvorn annan fyrr en of seint. Endaði þetta með því að ég klessti inn í hlið bílsins og sem betur fer var hann ekki með gáminn á þannig að ég klemdist ekki mikið nema aðeins á hendi og datt ekki í götuna. þannig að ég var virkilega heppinn að slá ekki höfðinu í neitt þar sem ég var hjálmlaus.
Kallinn á gámabílnum var mikið brugðið bæði vegna þess að þetta er ein stærsta orsök dauðaslysa á hjóli í danmörku og að vera ekki skráður fyrir óhappi því þá missir hann ökuleifið og þar með vinnuna og í skaðabætur gaf hann mér 200 kall sem ég nýtti mér til kaupa á hjólahjálminn hér á myndinni.

þannig að ég vona að fleirri nýti sér óhappið sem aðvörun og kaupi sér hjólahjálm.



P.S. og noti hann líka .

með venlig heilsu
Kiddi í Køben

28.4.07

Hjólið komið í fulla notkun

Jæja þá er komið að því að skrifa smá

Hjólreiðarnar ganga vel. Farinn að taka hjólið fram yfir strætoferðirnar af mörgum ástæðum.
1. ég er 20 mín fljótari en strætó
2. ég get drukkið minn bjór í friði fyrir bjórvömbinni
3. ég stuðla að betra baki og hraustari líkama
4. ég er bara farinn að líka við að hreifa mig og ná að slá eigið met í hraða
5. sólin er meiri og brekkunar minni

En svo er það eitt það flottasta
þetta fína fyrirtæki sem ég fékk samning hjá er svo fínnt!
Að ég verð að ferðast landið á enda til að geta tekið 2 vikur á verkstæði í Aalborg og þá er ég að tala um að ég verð að vera í aalborg í 2 vikur og vinna þar án fjölskyldu eða nokkuð annað svaka gaman mannur fíla mig bara eins og þegar ég fór á sjóinn en vonast til að geta tekið hjólið með svo maður hafi eithvað að gera eftir vinnu.n auðvitað tek ég líka með mér nyjustu bókina um Wallander löggu Kennedys hjerne.


og svo svona smá leikur í nýju tölvunni hennar lilju




9.4.07

hvað á ég að segja


veit nú ekki hvað ég á að segja er að prófa nýju tölvuna mína því konan er að fara að kaupa sér nyja og ég fékk hennar gömlu
Já þetta er búið að snúast við konan fær nýja tölvu og ég fæ þá gömlu
var að búa til dagatal og hér er það

14.1.07

Vorið er komið og grundirnar gróa

Já það er með sanni sagt að vorið er komið hér í køben

í gær 13.01.2007 kom dóttir mín til mín og sagði að það væri bífluga inni í stofu.
Ég með stakri ró sagði að það væri nú ekki möguleiki á því að það væri bífluga gæti verið einhver smá fluga en ekki BÍFLUGA. En viti menn daman hafði rétt fyrir sér það var þessi væna hlussu bífluga á stofuglugganum (sem betur fer að utanverðu) stærðin þetta 1,5 cm á lengd og 0,5 cm á breidd ekki neitt minnigerðin sko.

þannig að hér bíðum við ekki eftir Lóunni heldur bíinu

hafið það gott elskunar.

kveðja Kiddi í Køben

7.1.07

já nú er það komið á skrið verður að bloga oftar

Vegna áskorana
Hef jeg nú ákveðið að halda áfram að bloga og bloga lítið eitt meira en á næsta ári enda nú þegar kominn í 25% af öllu blogi í fyrra
það helsta núna er að á morgun er minn fyrsti vinnudagur í danmörku! get ekki sagt utan íslands þar sem ég hef nú þegar unnið í Þýskalandi og Bretlandi í smá tíma í senn en þetta er svona fyrsta alvöru jobbið mitt skrifa upp á 4 ára samning til að geta klárað námið til optiker (sjóntækjafræðingur(sem er allt of langt orð miða við optiker ))
jeg keypti mér mit fyrsta 3 Zoner månadskort i toget og kemst nú í fields án þess að kaupa mér extra Zone og í vinnuna stiðstu leið en þarf sem sagt að fara úr zone 2 í gengum Zone 3 til að komast þá leið og inn í Zone 1 þar sem vinnan mín er á amagerbrogade 44

6.1.07

Já námið heldur áfram

í gær föstudaginn 5 janúar fékk ég loksins samning
ég fékk samning hjá Louis Nielsen
Amagerbrogade 44 - 46
og þar með er ekki ný framtíð í uppsiglingu meir heldur áframhaldandi nám næstu 4 árin hjá TEC frederiksberg og Louis Nielsen
Ég var mikið farinn að spá í að prófa fleirri grundforlob en þetta lukkaðist og þar með hugmyndir um bók um grundforlob í danmörku orðnar að engu.
en nú bendi ég öllum sem lesa þetta að kynna sér góð tilboð á gleraugum hjá Louis Nielsen
á vefslóðinni
www.louisnielsen.dk og koma svo við hjá mér á amagerbrogade 44

með hveðju til allra sem enn lesa blogið mitt

kveðja kiddi í køben