27.5.06

Sverige - Malmö - Københagen - Denmark

Já svona er þetta núna hjá mér
Við hjónin ákváðum að leggja land undir fót í þessu prinsafríi sem við höfðum í dag föstudag á eftir uppstigningardegi.
Og aðal ástæðan fyrir því var sú að okkur fjölskyldunni er boðið í tvö "Garðteiti" hjá leikskóla og skóla Barnanna okkar. Því í "Garðteitum" fer maður með "Garðteitatösku"(Picnicbasket) og við fundum enga almennilega í Köben þannig að við ákváðum að eyða einhverjum, "Fredrik kronprins" degi (held að hann hafi orðið 38 ára á þessum degi), sem er frídagur hjá skólafólki í danaveldi, í Sverige bara svona að halda upp á það að komandi þjóðhöfðingi eigi afmæli heheheh, Og (enn eitt Og-ið) þar fundum við margt sem okkur datt ekki í hug að væri til( eða væri ekki til lengur) Nr 1 var garðteitataskan hún fannst og er flott ( farið til Sverige til að kaupa Garðteitatöskur þeir kunna að selja svoleiðis. Nr 2 var 15´(tommu) Hrökbrauðs skífur með gati í miðjunni flottur hlutur og góður á bragðið en súrt fyrir íslendinginn að kaupa sér eithvað svona hringlaga dekk sem er 3´ tommu þykkt og 15´ tommur í þvermál innpakkað í pappír. Nr 3 var svo fyrir okkur þau sem eru fædd á 80 áratugnum (einn sviginn enn (1970 -80)) ógleymanlegur hlutur sem ég persónuleg hélt að væri útdauður með öllu. það er það sem ég fékk þegar ég var búinn að taka við fullri skeið af ufsalýsi og þótti sem betur fer ekki það vont að ég kúaðist. En hef nú heyrt sögur þar sem fólki þótti þetta nú ekki besti morgun drykkur í heimi og (hvað eru ogin orðin mörg) þakkaði guði fyrir að það mátti bara taka eina MATSKEIÐ á dag af þessum heilsudrykk íslendinga. var SANA SOL þessi appelsínu vítamínbætti drykkur sem tók allt óbragð af Ufsalýsinu. Hver man ekki eftir þessari svörtu flösku með gulum tappa og sólarmiðanum framan á með andliti drengs í miðju. Jú við keyptum eina flösku og auðvitað verður þetta vítamín nr 1 hjá börnunum mínum hér eftir og ég fer til sverige í hvert skipti sem þennann drykk vantar á morgunverðaborð barna minna.

25.5.06

en erfitt að svara commentum

jaja þá á að vera hægt að "commentera" á þetta bull í mér ef þið þá nennið því þá

24.5.06

nú er cv og myndir af verkum mínum komið á netið
hér er slóðinn
www.liljabjork.monline.dk/kristinn

23.5.06

Byrjun

Vegna áskorunnar um að fá að svara blogginu mínu. Varð ég að skipta um svæði á blogginu mínu vonandi verð ég aðeins meira lifandi hérna inni heldur en á gamala staðnum en tíminn einn leiðir það í ljós

Kveðja kiddi